Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina Vesturhlíð land, Skagafirði.
Hlaðið einbýlishús ásamt bílgeymslu (skemmu) alls 209,2 fm.
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er einbýlishúsið 97,6 fm. og byggt árið 1953. Bílgeymslan er 111,6 fm. og byggð árið 2006.
Lóðin er 1750 fm. og eignarlóð.
Snyrtileg eign sem hefur verið vel við haldið.
Vesturhlíð er staðsett innarlega í Lýtingsstaðahreppi hinum forna í Skagafirði.
Vegalengd til Varmahlíðar er 37,6 km. og 62,1 km. til Sauðárkróks.
Fasteignin er almennt í góðu ástandi að utan sem innan og hefur verið mikið endurnýjuð.
Helstu endurbætur og viðhald:
Árin 2006-2008: Þak endurnýjað, húsið einangrað og múrað að utan og skipt um alla glugga. Eldhúsinnrétting og tæki endurnýjað.
Árið 2008: Skemma/bílgeymsla byggð.
Árið 2017: Öll gólfefni íbúðarhússins endurnýjuð. Ofnalagnir og ofnar endurnýjað. Frárennslislagnir endurnýjaðar. Drenað meðfram húsinu.
Árið 2019: Sólpallur með skjólvegg byggður.
Árið 2023: Hitaveitulögn frá hitaveitulind endurnýjuð inn í húsið. Húsið málað, veggir, gluggar og þakkantur. Pallur fúavarinn. Gluggar og þakkantur málað á skemmu.
Íbúðarhúsið skiptist í tvö herbergi, stofu, eldhús, búr, baðherbergi, hol, þvottahús og tvær forstofur.
Forstofur eru á norður- og austurhlið hússins. Báðar eru flísalagðar.
Inn af forstofu að norðan er flísalagt þvottahús. Útgangur frá forstofu á pall vestan við húsið þar sem er heitur pottur. Í þvottahúsi er vaskaborð.
Eldhús er parketlagt, viðarinnrétting með grárri borðplötu. Whirlpool eldavél, Scan ísskápur, AEG helluborð. Inn af eldhúsi er búr.
Baðherbergi er með flísalögðu gólfi og veggjum. Hvít innrétting, handklæðaofn og sturta.
Tvö parketlögð herbergi og eitt með skápum.
Hol er parketlagt.
Geymsluloft er yfir öllu húsinu.
Skemman er stálgrindarhús frá H.Hauksson ehf.
Skemman er fullfrágengin og m.a. með gólfhita.
Nánari upplýsingar og söluyfirlit hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
07/03/2024 | 57.250.000 kr. | 25.000.000 kr. | 209.2 m2 | 119.502 kr. | Já |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
540 | 155.3 | 44,8 | ||
545 | 222.8 | 46,9 | ||
530 | 242.2 | 68 | ||
540 | 186 | 59,5 | ||
545 | 237 | 63 |