Fasteignaleitin
Skráð 28. apríl 2024
Deila eign
Deila

Álftamýri 30

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
72.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.700.000 kr.
Fermetraverð
826.870 kr./m2
Fasteignamat
51.300.000 kr.
Brunabótamat
32.500.000 kr.
Eggert Ólafsson
Löggiltur fasteignasali og löggiltur leigumiðlari
Byggt 1962
Þvottahús
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2013892
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Endurnýjuð rafmagnstafla í sameign
Frárennslislagnir
Endurnýjað undir húsi
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta til
Þak
Endurnýjað járn á þaki árið 2021
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Á aðalfundi 2024 var samþykkt að fara í viðgerð á hitalögn í stétt, en stefnt er að því að fara í það í apríl 2024, einnig þarf að fá tilboð í að taka upp og leggja niður hellur vegna viðgerðar. Sjá nánar aðalfundargerð 07.02.2024
Gallar
Móða er milli glerja í litla herberginu inn af eldhúsi og mögulega einnig í glugga í hjónaherbergi. Vantar stokk utan um rör bak við ísskáp í eldhúsi. Ofn í litla herberginu inn af eldhúsi hitnar ekki að sögn leigjanda.
Lögheimili eignamiðlun kynnir 3ja herbergja íbúð á 2. hæð.  Eignin er samtals 72,2 fm.  Þrjú herbergi eru í íbúðinni í dag, þar sem einu herbergi hefur verið bætt við úr hluta eldhúss.  Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjavík.  Í næsta nágrenni er leikskóli, grunnskóli, framhaldsskóli, verslanir, Miðbær verslunarkjarni, Kringlan, ýmis þjónusta, íþróttafélag o.fl.
 
Nánari upplýsingar veitir: Eggert Ólafsson, löggiltur fasteignasali, í síma 893 1819, eggert@logheimili.is
 
Endurnýjað og viðgert að sögn seljanda:  Árið 2021 var húsið múrviðgert og málað að utan, gluggar og hurðir endurnýjað þar sem þörf þótti og járn á þaki endurnýjað.  Árið 2017 voru opnanleg fög endurnýjuð í íbúðinni.  Árið 2016 nýr sturtuklefi.  Árið 2014 var þvottahús og þurrkherbergi  máluð og lagfærð.  Árið 2010 var salerni og vaskur á baðherbergi endunýjað.  Árið 2007 var endurnýjuð rafmagnstafla ásamt tenglum í þvottahúsi, þar sem hver íbúð er með sinn tengil fyrir þvottavél og þurrkara.  Einnig hefur verið endurnýjuð eldhúsinnrétting ásamt tækjum, sett eldþolin hurð fram í stigahús, endurnýjuð stétt framan við hús og sett upp snjóbræðslukerfi.
 
Nánari lýsing: 

Komið er inn í hol með fatahengi.  Stofa/borðsofa er með útgengt á suðursvalir.  Í eldhúsi er falleg ljós innrétting með viðaráferð, opið á eina hlið inn í hol og með innangengt í lítið herbergi sem hefur verið stúkað af úr hluta eldhúss.  Hjónaherbergi er með fataskáp.  Tvö herbergi og hefur öðru herberginu, sem er lítið, verið bætt við frá upprunalegu skipulagi íbúðarinnar, þ.e. úr hluta eldhúss.  Baðherbergi er með skáp undir vask og á vegg, sturtuklefa, opnanlegum glugga, tengi fyrir þvottavél og flísum upp veggi.  Plastparket er á gólfum, nema á eldhúsi, baðherbergi og holi þar sem eru flísar.  Sérgeymsla, ásamt sameiginlegri hjólageymslu, þvottahúsi og þurrkherbergi er í kjallara.
 
Annað:  Skipulagi hefur verið breytt frá upphaflegri teikningu.  Eignin er skráð 3ja herbergja, en einu herbergi hefur verið bætt við úr hluta eldhúss og eldhús því minnkað sem því nemur.  Frekar auðvelt er að stækka eldhúsið aftur með því að fjarlægja vegg á milli.  Skv. Fasteignaskrá Íslands er íbúð 67,7 fm., geymsla 4,5 fm., eða samtals 72,2 fm.  Eignin er í útleigu, en leigusamning hefur verið sagt upp og er eignin laus 1. október, 2024, en mögulega fyrr og jafnvel í júní n.k. að sögn leigjanda.  Innimyndir í auglýsingu eru frá árinu 2018.
 
Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lögheimili eignamiðlun því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4 til 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.  Nánari   upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/06/201829.750.000 kr.36.000.000 kr.72.2 m2498.614 kr.
11/02/201316.550.000 kr.20.900.000 kr.72.2 m2289.473 kr.
12/02/200714.220.000 kr.17.200.000 kr.72.2 m2238.227 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Safamýri 54
Bílskúr
Skoða eignina Safamýri 54
Safamýri 54
108 Reykjavík
77.1 m2
Fjölbýlishús
213
777 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Grensásvegur 60
Skoða eignina Grensásvegur 60
Grensásvegur 60
108 Reykjavík
77.3 m2
Fjölbýlishús
312
770 þ.kr./m2
59.500.000 kr.
Skoða eignina Hæðargarður 6
Skoða eignina Hæðargarður 6
Hæðargarður 6
108 Reykjavík
62.4 m2
Fjölbýlishús
211
960 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Borgartún 24 - íbúð 302
Borgartún 24 - íbúð 302
105 Reykjavík
61.9 m2
Fjölbýlishús
211
1000 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache