Fasteignaleitin
Skráð 13. maí 2024
Deila eign
Deila

Víðihlíð 1 íbúð 101

Nýbygging • FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-604
105.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.600.000 kr.
Fermetraverð
704.438 kr./m2
Fasteignamat
2.980.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
BD
Björn Davíðsson
Löggiltur fasteignsali
Byggt 2023
Þvottahús
Garður
Útsýni
Sérinng.
Fasteignanúmer
2517367
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Nýjar
Raflagnir
Nýjar
Frárennslislagnir
Nýjar
Gluggar / Gler
Nýjir, þrefalt gler
Þak
Nýtt - sjá nánar í skilalýsingu
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
16,22
Upphitun
Hitaveita - Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
3 - Burðarvirki fullreist
Matsstig
3 - Risin bygging
Víðihlíð 1 íbúð 101 Hörgársveit - Nýbygging
 
Glæsileg 4ra herbergja íbúð á neðri hæð í norðurenda í nýju sex íbúða fjölbýlishúsi í Hörgársveit – stærð 105,9 m²
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning


Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, hjónaherbergi, tvö barnaherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Sameiginleg 8,7 m² vagna- og hjólageymsla.
  • Vandaðar innréttingar frá GKS
  • Ísskápur með frysti og uppþvottavél fylgir með við sölu.
  • Húsið er í flokki B fyrir hljóðvist sem er umfram lágmarkskröfur byggingarreglugerðar um kröfur fyrir hljóðeinangrun innbyrðis á milli íbúðareininga
  • Þrefalt gler í öllum gluggum
  • Aukin lofthæð
  • Viðhaldsfrí utanhússklæðning
  • 10,9 m² steypt verönd
Innréttingar
Eldhús, innréttingar og skápar eru af vandaðri gerð frá GKS. Eldhúsinnrétting er úr hnotu og hvít með
mjúklokunarbúnaði. Bekkplata er úr plasti í hvítu marmaralíki. Veggplata er á milli bekkplötu og efri
skápa, hún er eins á litinn og bekkplata.
Eldhúsi er skilað með fullbúnum heimilistækjum: span-helluborði (AEG), ofni (AEG), ísskáp með frysti
(AEG), viftu með kolasíu frá Elica (lofti er blásið út úr íbúðum frá eldavél) og uppþvottavél (AEG).
Fataskápar í svefnherbergjum og forstofu eru hvítir.
Þvottahús er með hvítri innréttingu.
 
Gólfefni - Í forstofu, baðherbergi, þvottarými og geymslu eru gólf flísalögð með ljósgráum flísum. Önnur gólf
innan íbúða eru lögð með eikar harðparketi.
Innihurðar eru hvítar og hurðarhúnar úr burstuðu stáli.
Innveggir eru flestir staðsteyptir, þeir veggir sem eru ekki steyptir eru gerðir úr blikk-grind og klæddir með plötum í flokki 1. Innveggir uppfylla lágmarkskröfur fyrir lofthljóðeinangrun innbyrðis á milli herbergja innan íbúðareiningar samkvæmt ÍST 45:2016
Gluggar eru ál/trégluggar hvítir að innan, dökk gráir að utan. Öryggisgler er í hurðum og þrefalt verksmiðjugler í gluggum.
Útveggir eru 180mm járnbentir og staðsteyptir. Veggir eru einangraði að utan með steinull og einangrun er í flokki A1 samkvæmt EN13162. Klætt er utan á útveggi með tvöföldu álkerfi og með öndunardúk (TRASPIR 115 eða sambærilegt). Ysta byrði útveggja (klæðning) er 8 mm Swisspearl Pantina sementplata. Veggir á milli íbúða eru 300mm járnbentir og staðsteyptir með brunaþol REI-90. Þeir uppfylla hljóðvistarflokk B samkvæmt staðlinum ÍST 45 sem er umfram lágmarkskröfur byggingarreglugerðar um kröfur fyrir hljóðeinangrun innbyrðis á milli íbúðareininga.
Þakið er timburþak/sperruþak (A-þak),  klætt og varið með BMI Icopal tjörudúk
Útsogs/ferskloftkerfi. Vélrænt útsog er úr baðherbergi og geymslu. Útsog íbúðar er tryggt með þakblásarar með öflugum blæstri.
Hitalagnir eru í gólfi íbúðar (gólfhitakerfi) og er stýrt með stafrænum-hitanemum í hverju rými. Handklæðaofn er á baðherbergi.
Raflögn er fullfrágengin. Í lofti í stofu, eldhúsi, hjónaherbergi og baði eru innfelld led-ljós, sem fylgja með íbúðinni. Hefðbundinn ljós eru í öðrum svefnherbergjum sem og inni geymslu og inntaksrými (utan íbúðar). Önnur ljós fylgja ekki íbúð.
Ídráttarrör og staurar eru fyrir mjöglega hleðslustöð. Útilýsing er við inngang í búðar og svalir.
 
Sólpallar við hús eru staðsteyptir og ná tæpa tvo metra út frá húsi. Lengd palla er um 5.7 metrar. Handrið, galvaniseruð koma á kantinn á pallinum.
Lóð verður jöfnuð og tyrft. Ef kostur gefst verður sáð í lóð en ef framkvæmdir eru að hausti er það ekki mögulegt. Stéttar á jarðhæð eru hellulagðar. Eignin er afhent án trjágróðurs á lóð.
Staðsteyptar sorptunnugeymslur eru staðsettar nærri götu.
Malbikuð bílastæði eru fyrir framan húsið. Snjóbræðsla með frostlegi (lokað kerfi) er í gangstéttum og bílastæði fyrir hreyfihamlaða.
 
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar þess verður krafist (0,3% af brunabótamati viðkomandi eignar).

Byggingarverktaki: Hamrar Byggingarfélag ehf.  www.hamrarbygg.is 

Eignin er í einkasölu
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Víðihlíð 1 íbúð 103
Víðihlíð 1 íbúð 103
604 Akureyri
105.9 m2
Fjölbýlishús
413
704 þ.kr./m2
74.600.000 kr.
Skoða eignina Víðihlíð 7 101
Víðihlíð 7 101
604 Akureyri
107.6 m2
Fjölbýlishús
4
678 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Víðihlíð 7 201
Víðihlíð 7 201
604 Akureyri
108.3 m2
Fjölbýlishús
413
679 þ.kr./m2
73.500.000 kr.
Skoða eignina Víðihlíð 7 203
Víðihlíð 7 203
604 Akureyri
107.6 m2
Fjölbýlishús
413
683 þ.kr./m2
73.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache