Lind fasteignasala ehf kynnir eignina Boðaþing 6, 203 Kópavogur fyrir 55 ára eða eldri, nánar tiltekið eign merkt 05-01, fastanúmer 230-3491 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Boðaþing 6 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 230-3491, birt stærð 162.9 fm. ásamt stæði í bílageymslu.
2 svefnherbergi, 2 baðherbergi, Penthouse með 45,9 fm. suðursvalir. Laus við kaupsamning. Mikið útsýni.
Eignin skiptist eftirafarandi:
Forstofa með góðum skápum, parket á gólfi
Eldhús og stofa í alrými, eldhús með vandaðri ljósri viðarinnréttingu með stórri eyju, borðkrókur með miklu útsýni yfir Ellliðavatn og fjallahringinn, parket á gólfum,
Stofa með parketi á gólfi, útgangur út á 45,9 fm. suðursvalir frá stofu
Hjónaherbergi með parketi, innaf hjónaherbergi er stórt baðherbergi með hvítri innréttingu, baðkari og rúmgóðum sturtuklefa, flísar á gólfi og veggjum, fataherbergi og þvottahús með innréttingu og flísum á gólfi.
Sjónvarpshol með parketi á gólfi
Svefnherbergi með skápum, parket á gólfi
Baðherbergi með sturtu, flísar á gólfum og veggjum
Þvottahús með hvítri innréttingu, flísar á gólf
Geymsla 10,6 fm. er í kjallara hússins ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.
Sérstæði í bílakjallara sem er mjög rúmgott eða um 35 fm. skv. HMS. en er ekki inní skráðri fermetratölu
Næg sameiginleg bílastæði fyrir framan aðalinngang hússins.
Íbúðin er staðsett á mjög vel skipulögðu svæði sem myndar kjarna í kringum þjónustumiðstöð aldraðra á vegum Kópavogsbæjar og Hrafnistu DAS þar sem boðið er upp á ýmsa þjónustu t.d. heitur matur í hádeginu, sundlaug og fleira.
Íbúðir í Boðaþingi 6-8 eru fyrir 55 ára og eldri.
Nánari upplýsingar veitir Viðar Marinósson Löggiltur fasteignasali, í síma 898-4477, tölvupóstur vidar@fastlind.is.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.