Glæsileg tveggja herbergja íbúð í lyftuhúsi, íbúðin er á tveimur hæðum og er í einskonar New York loft stíl. Hægt er að ganga inn í íbúðina af fjórðu og fimmtu hæð. Mjög skjólsælar suðursvalir eru út frá stofu á neðri hæð íbúðarinnar.Inngangur neðri hæðar, opið hol með parketi og skápum.
Gesta salerni er flísalagt í hólf og gólf.
Stofa með parketi og þaðan er útgengt út á suðursvalir.
Eldhús með parketi og fallegri grárri innréttingu, Hnota í borðplötu.
Efri hæð:Svartur tignarlegur stigi er á milli hæða.
Opið herbergi með parketi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, falleg innrétting, sturta og stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Inngangur efri hæðar, hol með parketi og skápum.
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorsteinsson Löggiltur fasteignasali í síma 897-3412 ragnar@fastlind.is eða Kristján Þórir Hauksson Löggiltur fasteignasali í síma 696-1122 eða kristjan@fastlind.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.