Fasteignaleitin
Skráð 9. maí 2024
Deila eign
Deila

Kolagata - Lúxusíbúð 2

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
91 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
109.900.000 kr.
Fermetraverð
1.207.692 kr./m2
Fasteignamat
82.750.000 kr.
Brunabótamat
72.150.000 kr.
Mynd af Halldór Már Sverrisson
Halldór Már Sverrisson
Byggt 2018
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2363650
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Númer íbúðar
11
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Tvöfallt gler
Þak
Upprunalegt
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Íbúðaeignir og Halldór Már, löggiltur fasteignasali kynnir til sölu lúxus íbúð í hjarta Reykjavíkur með aukinni lofthæð og um 55 fm þakverönd. 
Kolargata 2 er nýlegt hús í hjarta miðbæjarins. Íbúðin er frábærlega staðsett í nálægð við menningu, sögu, verslun og þjónustu.  Allar innréttingar og tæki eru sérvaldar af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild og eru öll tæki og tæknibúnaður fyrsta flokks. Allt ytra efnisval bygginganna er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur. 


Hafnartorg / Kolagata 2 er 3ja herbergja 91 fm á 2. hæð með þakverönd.
Eignin skiptist í: Anddyri, gang, 2 svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, 2 baðherbergi og þvottahús.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 91 fm. þar af geymsla 6,4 fm.

Íbúðin er með innbyggðum ísskáp, uppþvottavél og vínkæli, með parketi á gólfum fyrir utan flísar í votrýmum.
Forstofa með góðu skápaplássi. Fataskáparnir eru sprautulakkaðir með innvols frá Innval af vandaðri gerð. Inngangshurð er svargrá með viðaráferð frá Huet.
Eldhúsið er með glæsilegri innréttingu frá Noblessa. Borðplata og klæðning er úr Meganite Carrara efni og með eldhúsvask sem felldur er í borðplötuna úr sama efni. Öll eldhústæki eru af vönduðustu gerð frá Siemens. Lýsing er undir efri skápum og ljúflokun á skúffum og skápum. Innbyggður ísskápur, uppþvottavél, innbyggð kaffivél og vínkælir fylgir.
Stofan er í alrými með eldhúsi með útgengi á svalir og 55m þakgarð með miklum möguleikum.
Þvottahús með vandaðri innréttingu frá Noblessa. Á gólfi eru flísar frá Iris Stone. Skolvaskur fylgir.
Baðherbergi er flísalagt með flísum frá Iris stone á bæði gólf og veggi. Falleg innrétting frá Noblessa. Meganite borðplata með innbyggðum vaski úr sama efni. Upphengt salerni með innbyggðum vatnskassa og falleg sturta með blöndunartækjum frá Vola.
Hjónaherbergið er með góðum fataskápum sem eru sprautulakkaðir með innvols frá Innval af vandaðri gerð. 
Baðherbergi er innaf hjónaherbergi með innréttingu frá Noblessa. Upphengtu salerni og sturtu.
Svefnherbergið er með sprautulökkuðum fataskáp með innvols frá Innval af vandaðri gerð.

Einstakt hús í hjarta borgarinnar.
Hafnartorg skartar 70 hágæða íbúðum, allt frá stílhreinum tveggja herbergja íbúðum upp í stórglæsilegar þakíbúðir með einstöku útsýni. Allar innréttingar og tæki eru sérvaldar af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild og eru öll tæki og tæknibúnaður fyrsta flokks. Allt ytra efnisval bygginganna er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur. Undir húsunum er stærsti bílakjallari landsins sem nær allt til Hörpunnar. Íbúðirnar eru frábærlega staðsettar í nálægð við menningu, sögu, verslun og þjónustu. Lúxus fasteignir í hjarta Reykjavíkur með iðandi mannlíf allt um kring.

Innihurðar eru sprautulakkaðar mattar í sama lit og veggir, framleiddar hjá HBH smíðaverkstæði.
Rafkerfi útihurðir eru raflæstar og tengdar heildstæðu aðgangsstýrikerfi. E-Net ljósastýrikerfi frá GIRA er í öllum íbúðum sem býður upp á notkun smáforrits (app) í snjalltækjum til að stýra ljósum.
Hita og loftræstikerfi pípulagnakerfi hússins (innan íbúða) er leitt í gegnum lóðrétta lagnastokka. Ofnalagnir eru innsteyptar rör-í-rör og ofnar eru með vönduðum ofnlokum frá Danfoss

Bílakjallari
Í bílakjallaranum, sem verður opinn allan sólarhringinn alla daga ársins, verður sólarhringsvöktun og öryggisgæsla. Mikið verður lagt upp úr frágangi hvað varðar lýsingu, merkingar og að auki verður fullkomið leiðsagnarkerfi til að auðvelda að finna stæði eða fá leiðbeiningar um hvar bílar eru staðsettir og hvernig eigi að komast að og frá þeim stað sem eigandi bíls er staddur í byggingunum. Íbúum hússins gefst kostur á að gera langtímasamning um leigu á bílastæði.


Allar upplýsingar um eignina veitir:
Halldór Már Sverrisson, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 898 5599 eða halldor@ibudaeignir.is

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Því skorar Íbúðaeignir fasteignasala á alla væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og eftir atvikum leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign og greiðist við kaupasamning:
-Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða og eignarhluti er 30% eða hærri.
-Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
-Umsýslugjald fasteignasölu skv. gjaldskrá. 
-Lántökugjald vegna veðlána, sjá nánar á vefsíðu viðeigandi stofnunar.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
23/10/201962.250.000 kr.62.000.000 kr.92.5 m2670.270 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lindargata 39
Bílastæði
Skoða eignina Lindargata 39
Lindargata 39
101 Reykjavík
90.2 m2
Fjölbýlishús
312
1297 þ.kr./m2
117.000.000 kr.
Skoða eignina Tryggvagata 21
Skoða eignina Tryggvagata 21
Tryggvagata 21
101 Reykjavík
88.2 m2
Fjölbýlishús
322
1189 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Hverfisgata 92C
Bílastæði
Skoða eignina Hverfisgata 92C
Hverfisgata 92C
101 Reykjavík
109.1 m2
Fjölbýlishús
312
962 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V2 íb 303
Bílastæði
Opið hús:21. maí kl 17:00-18:00
Vesturvin V2 íb 303
101 Reykjavík
102.1 m2
Fjölbýlishús
312
1053 þ.kr./m2
107.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache