LIND fasteignasala og Herdís Sölvína Jónsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu bjarta og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á 3 hæð í góðu fjölbýli með fallegu útsýni og svölum með svalalokun á vinsælum stað í hjarta Keflavíkur. Stutt er í alla helstu þjónustu eins og skóla og matvöruverslun.
Íbúðin skiptist í forstofu/hol, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús og rúmgóða stofu með útgengi út á suðvestur svalir með svalalokun. Bílastæði er í bílakjallara og þvottaaðgengi fyrir bíla.
Eigninni fylgir hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu ásamt sér geymslu í kjallara.
Birt stærð eignar er 79,2 fm. en þar af er geymsla 4,7 fm.
Allar nánari upplýsingar veitir Herdís Sölvína Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 862 0880 eða herdis@fastlind.is
Smelltu hér og fáðu söluyfirlitið strax.Nánari lýsing eignar, íbúð 301:Forstofa/hol er parketlagt með fataskáp.
Hjónaherbergi er parketlagt og rúmgott með góðum fataskápum.
Eldhús er parketlagt í opnu alrými með viðarinnréttingu, ljósri borðplötu, bakaraofni og góðu skápaplássi.
Stofa og borðstofa er parketlögð, rúmgóð og björt með glæsilegu útsýni. Úr stofu er útgengt út á suðvestur svalir með svalalokun.
Baðherbergi er með flísalögðu gólfi og veggjum, viðarinnréttingu með ljósri borðplötu, sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni.
Þvottahús er rúmgott með skolvaski.
Geymsla er í kjallara og er 4,7 fm.
Bílastæði er
nr. 2 í bílakjallara.
2023 Skipt um gler í svefnherbergi og stofu.
Falleg eign sem vert er að skoða miðsvæðis í hjarta Keflavíkur.Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak og Dorma.
** Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
** Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
** Frítt söluverðmat á þinni eign hér eða hjá Herdís Sölvína Jónsdóttir, sími 862 0880 / herdis@fastlind.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.