Víkurás 8, íbúð 201 110 Reykjavík er skemmtileg 58,8 m² 2ja herbergja íbúð á fyrstu hæð með góðum sér palli til suðurs, á góðum stað í Árbænum. Íbúðin skiptist í anddyri, 1 svefnherbergi, baðherbergi og eldhús, borðstofu og stofu í einu rými. Í sameign er góð geymsla, þvottahús og mjög rúmgóð hjólageymsla.
Eignin er samtals 58,8 m² þar af er geymsla 4,0 m².
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er í forstofu með fataskáp. Parket á gólfi.
Eldhús: Bjart með ágætri innréttingu. Þvottavél í eldhúsi. Parket á gólfi.
Stofa: Björt og nýtist vel. Útgengt á á rúmgóðan pall til suðurs. parket á gólfi.
Svefnherbergi: Bjart og gott herbergi með góðum fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Baðkar með sturtuaðstöðu. Eldri innrétting og tæki.
Þvottahús: Sameiginlegt á annarri hæð
Stutt í alla þjónustu, sundlaug skóla og verslanir.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Procura fasteignasölu á netfang
fasteignir@procura.is eða í síma
497 7700
- - -
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum og hvetjum við væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Kostnaður kaupanda: Opinber gjöld vegna kaupa á þessari eign er stimpilgjald kaupsamnings, 0,4% af fasteignamati fyrir fyrstu kaupendur, 0,8% fyrir aðra einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjöld eru 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.