Fasteignaleitin
Skráð 11. maí 2024
Deila eign
Deila

Hafnarbraut 4 - 103

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
62.5 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
63.990.000 kr.
Fermetraverð
1.023.840 kr./m2
Fasteignamat
52.350.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Berglind Hólm Birgisdóttir
Berglind Hólm Birgisdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2024
Lyfta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2516228
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
K-gler - Ál/Tré
Þak
nýtt
Svalir
verönd í vestur
Upphitun
ofnakerfi / sjálfstæð loftræstikerfi
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
8 - Í notkun
Berglind Hólm lgfs og RE/MAX kynna: ++ Íbúðir tilbúnar til afhendingar við kaupsamning ++
Íbúð 103 er glæsileg 2ja herbergja, 62,5 fm íbúð á 1.hæð (jarðhæð) í Hafnarbrautar 4. Gengi er út á hellulagða verönd frá stofunni sem snúa í vestur.  Eitt gott svefnherbergi eru í íbúðinni og baðherbergi m/aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Einstaklega skemmtilega og vel skipulögð íbúð.  
(Myndir á vef eru ekki í öllum tilfellum nákvæmlega úr þeirri eign sem auglýst er en þær gefa hugmynd af því hvernig útlit íbúðar er)

Smellið hér fyrir heimasíðu verkefnisins og skilalýsingu
Kársnes.is


Glæsilegt nýtt 38 íbúða fjölbýli í fallegu nýju íbúðarhverfi á Kársnesinu í Kópavogi. Í húsinu eru 2ja, 3ja, 4ra og 5 herbergja íbúðir ásamt stæðum í lokaðri bílageymslu. Í hverri íbúð er sérstætt loftræstikerfi sem tryggir minni rakamyndun innan íbúð og almennt betri loftgæði í hverri íbúð fyrir sig (sjálfstæði stýring er í hverri og einni íbúð innan eignar). Húsið er álklætt og einangrað að utan ásamt því að gluggar eru einnig álklæddir utanhúss sem tryggir minna og léttara viðhald hússins. Allar íbúðir skilast fullbúnar án gólfefna nema á votrýmum. Baðherbergi eru með fallegum 60x60cm flísum á gólfi og hluta af veggjum, þvottaherbergi þar sem þau eru sér eru einnig með flísum á gólfi. Innréttingar eru glæsilegar frá VOKE-3, neðri skápar og eyjur eru í hnotuútliti og efriskápar eru í fallegum ljósbrúnum sandlit. Í 4ra og 5 herbergja íbúðunum eru tvö salerni. Einnig eru tvær penthouse íbúðir og eru þær með þremur salernum, stórri hjónasvítu og þaksvölum með heitum potti. Öll hönnun hússins er sérlega falleg og skemmtileg og íbúðirnar allar einkar vel skipulagðar.
 
Allar nánari upplýsingar veita Berglind Hólm lgfs í síma 694-4000berglind@remax.is og Þorsteinn Gíslason lgfs í síma 694-4700steini@remax.is
 
Úrdráttur úr skilalýsingu húss og lóðar:

·       Byggingafélagið Bestla ehf. er framkvæmdaaðili að Hafnarbraut 4-8. Starfsmenn Bestlu búa að áratuga reynslu og þekkingu úr byggingariðnaði á Íslandi.
·       Arkitektar og aðalhönnuðir: Teiknistofan Tröð
·       Burðarvirki hússins er staðsteypt með hefðbundnum hætti og eru útveggir einangraðir að utan og klæddir. Klæðningar hússins eru úr báruáli.
·       Gluggar og svalahurðar eru úr timbri að innan og klæddir ál-kápum að utan í hvítum lit. Allt gler er K-gler eða sambærilegt.
·       Þök byggingarinnar eru svokölluð viðsnúin. Ofan á steypta þakplötu eru brædd tvö lög af asfaltpappa og ofan á er lagður drendúkur undir 220mm rakaþolna plasteinangrun með vatnshalla a.m.k. 25 prómill. Ofan á einangrun er lagður síudúkur undir rúnaða sjávarmöl til förgunar.
·       Á lóð er einn staur með tvöfaldri rafhleðslustöð uppsettar og klárar til notkunar við hvert stigahús. Gert er ráð fyrir fleiri staurum við bílastæði.
·       Innihurðir íbúða eru hvítar yfirfelldar frá Ringo, geymsluhurðir eru hvítar yfirfelldar frá Ringo, söluaðili er Birgisson ehf. Hurðarhúnar eru ál litaðir. Inngangshurðir íbúða eru hljóðvistar úr tré EI30CS eldvarnahurðar. Eldvarnahurðir í sameign kjallara eru hvítar stálhurðir með rafmagnsofnunum í helstu gönguleiðum en hurðarpumpu í tækjarými, Sjálfvirkar inngangshurðir og foranddyrishurð á 1. hæð í aðalinngangi eru ál-gler.
·       Innréttingar í eldhúsi eru frá innréttinga- framleiðandanum Voke-3 og eru úr dökkri hnotu. Yfirborð hurða- og skúffuforstykkja eru úr slitsterku harðplasti sem er þægilegt í umgengni og viðhaldi. Vegghengdir efri skápar eru með innfræstri LED-lýsingu undir skápum í ljósum lit. Borðplötur eru 12 mm þykkar Compact. Eldhúsvaskur er undirlímdur.
·       Eldhús skilast með vönduðum tækjum frá AEG: span-helluborði og bakarofni með innbyggðum hitamæli. Ýmist er gufugleypir innbyggður í efri skáp eða sem lofthengdur eyjuháfur.
·       Baðherbergisgólf er flísalagt með flísum í stærðinni 60x60 cm frá Álfaborg. Hluti baðherbergisveggja er flísalagður og þá upp í loft með flísum sömu gerðar og eru á gólfum, sökkulflísar á veggjum sem ekki eru flísalagðir. Baðinnrétting er í ljósum lit. Yfirborð hurða- og skúffuforstykkja eru úr slitsterku harðplasti sem er þægilegt í umgengni og viðhaldi og mjúklokum á skúffum. Speglaskápar eru á baðherbergjum með led ljósum í hliðum. Borðplötur eru almennt úr 20mm þykku marmaralíki með í steyptum Nova vask.
·       Fataskápar hjónaherbergja eru í dökkri hnotu, aðrir skápar herbergja eru í ljósum lit. Fataskápar ná upp í loft.
·       Anddyri eru flísalögð en stigagangar teppalagðir. Póstkassar verða uppsettir í anddyri.  Fólksflutningalyfta er í húsinu, hún er sjúkraflutningalyfta skv. byggingarreglugerð.
·       Sorpflokkun íbúa er í þar til gerðum djúpgámum.
·       Samtals eru 38 sérmerkt bílastæði í bílageymslu. Bílageymsla er með reyklosun og vélrænni loftræstingu. Búið verður að leggja tengipunkta fyrir rafhleðslustöðvar í lofti bílageymslu. Einn tengipunktur fyrir þrjú stæði svo hægt er að setja upp hleðslustöðvar með einföldum hætti. Hægt verður að panta hleðslustöð við kaup á íbúð.
·       Allar íbúðir eru með sjálfstæðari loftræstingu með varmaskiptir. Upphituðu fersklofti verður blásið inn í öll svefnrými ásamt stofurými og útsog á baðherbergi, þvottahúsi og eldhúsi. Loftstokkar eru innsteyptir í plötur og er loftræstisamstæða staðsett á svölum flestra íbúða að utanskyldum fjórum íbúðum í stigahúsi 4, þar eru sérstök tæknirými innan íbúðar. Kostur þess að hafa sjálfstæða loftræstingu (inn- og útsog) er að þá er minni rakamyndun innan íbúða ásamt því að loftgæði íbúða eru ávallt góð og minni þörf er á að opna glugga til að fá ferskt loft.
 
Allar nánari upplýsingar, teikningar og skilalýsingu veita Berglind Hólm lgfs í síma 694-4000berglind@remax.is og Þorsteinn Gíslason lgfs í síma 694-4700steini@remax.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hafnarbraut 4
Opið hús:19. maí kl 15:00-15:30
Skoða eignina Hafnarbraut 4
Hafnarbraut 4
200 Kópavogur
62.5 m2
Fjölbýlishús
211
1024 þ.kr./m2
63.990.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 13a
Bílastæði
Opið hús:21. maí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Hafnarbraut 13a
Hafnarbraut 13a
200 Kópavogur
60.6 m2
Fjölbýlishús
211
1021 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Skoða eignina Víðihvammur 32
Skoða eignina Víðihvammur 32
Víðihvammur 32
200 Kópavogur
76.4 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
809 þ.kr./m2
61.800.000 kr.
Skoða eignina Hamraborg 34
Skoða eignina Hamraborg 34
Hamraborg 34
200 Kópavogur
76.9 m2
Fjölbýlishús
312
844 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache