Fasteignaleitin
Skráð 14. maí 2024
Deila eign
Deila

Hringhamar 9-11 íb. 603

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
84 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
891.667 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Guðmundur Þór Júlíusson
Guðmundur Þór Júlíusson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Fasteignanúmer
2522275
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
6
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Út frá Stofu.
Upphitun
Hitaveita
Matsstig
1 - Samþykkt
Guðrún Þórhalla og Guðmundur Þór Júlíusson löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna: Hringhamar 9-11 í Hamranesinu, Hafnarfirði. Glæsilegar nýjar útsýnisíbúðir í fallegu og sérlega vönduðu fjölbýlishúsi sem byggt er af traustum verkataka Mótx.

Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna. Allar íbúðir eru útbúnar með sérstöku loftræstiskerfi. Kerfið hefur loftskipti í íbúðinni með því  að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu, og soga lofti út úr baði, þvottahúsi og eldhúsi.

Eignirnar eru til afhendingar í Júní 2024.  Hringhamar.is - Heimasíða verkefnisins.

Íbúð 603: 84 fm 3ja herbergja íbúð á efstu hæð. Íbúðin er 77,1 fm ásamt 6,9 fm geymslu. 

Bókið skoðun hjá Guðrúnu í síma 820-0490 eða með tölvupósti á netfangið gudrun@remax.is eða á Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is 

Frekari upplýsingar um eignirnar:
Gólf íbúða eru fleytt og tilbúin fyrir endanlegt gólfefni, nema í baðherbergi og í þvottahúsi en þar eru flísar á gólfum. Einnig eru flísar á veggjum baðherbergja, flísar eru frá Parka. Fataskápar í herbergjum og forstofu eru af vandaðri gerð frá Axis. Borðplötur eru í eldhúsi, baði og þvottahúsi þar sem við á og eru frá Axis.

Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis ásamt vaski og Grohe blöndunartækjum frá Byko. Helluborð og blástursofn eru af gerðinni AEG frá Ormsson (sjá nánar á www.ormsson.is) Gufugleypir í eldhúsi er einnig frá Ormsson.

Baðherbergi: Baðinnrétting kemur frá Axis. Hreinlætistæki og handklæðaofn eru frá Byko. Salernið er upphengt og innbyggt. Hitastýrð blöndunartæki verða við sturtu. Gólf eru flísalögð og veggir að hluta upp í loft

Loftræsting: Sérstakt loftræstikerfi er fyrir hverja íbúð. Kerfið hefur loftskipti í íbúðinni með því að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu, og soga lofti út úr baði, þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með varmaendurvinnslu og nýtir við bestu aðstæður um 80% af varmanum. Kerfið er með loftsíum og er allt loft sem kemur inn síað. Ekki á að vera þörf á að opna glugga í íbúðinni til loftunnar.

Frágangur sameignar: Anddyri/stigahús er lokað og er það flísalagt á aðkomuhæð með uppsettum póstkössum. Stigar og stigapallar eru teppalagðir, handrið eru á stigagöngum. Allar útidyrahurðir frágengnar og er rafmagnsopnun á aðalinngöngum. Sameign er upphituð með ofnakerfi. Raflagnir í sameign eru fullbúnar með ljósum, sbr. teikningar. Loftræstilagnir eru lagðar skv. teikningu.

Sameign: Í bílgeymslu er lagt grunnkerfi fyrir bílhleðslu. Eigendur stæða í bílgeymslu 
geta sett upp eigin hleðslustöð og tengt inn á grunnkerfi bílgeymslu

Skólar og leikskólar eru í nágrenni og eru öruggar göngu- og hjólaleiðir að þeim. Einnig er fyrirhugað að nýr leikskóli rísi í næsta nágrenni.
Hverfið er í nálægð við náttúru og er staðsetningin einstök með tilliti til útivistar. Í næsta nágrenni er Ástjörn, Hvaleyrarvatn og ein vinsælasta gönguleiðin í Hafnarfirði, upp á Helgafell.

MótX ehf. er byggingaraðili verkefnisins og eigandi. MótX ehf. er alhliða byggingafélag og var stofnað árið 2005 og hefur starfað óslitið síðan. MótX ehf. hefur getið sér gott orð sem framleiðandi íbúðar- og iðnaðarhúsnæðis á þessum tíma. Félagið hefur fengið viðurkenningar, bæði fyrir hönnun bygginga og frágang lóða á nýbyggingasvæði.

Allar nánari upplýsingar veita:
Guðrún Þórhalla Helgadóttir löggiltur fasteignasali/viðskiptafræðingur í síma 820-0490 eða á netfangið gudrun@remax.is
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða á netfangið gj@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 35, íb. 509
Bílastæði
Hringhamar 35, íb. 509
221 Hafnarfjörður
98.2 m2
Fjölbýlishús
312
773 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 35, íb. 409
Bílastæði
Hringhamar 35, íb. 409
221 Hafnarfjörður
98.1 m2
Fjölbýlishús
312
759 þ.kr./m2
74.500.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 37, íb. 501
Bílastæði
Hringhamar 37, íb. 501
221 Hafnarfjörður
83.8 m2
Fjölbýlishús
312
870 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 2 íb203
Bílastæði
Opið hús:21. maí kl 17:30-18:00
Áshamar 2 íb203
221 Hafnarfjörður
100 m2
Fjölbýlishús
2
761 þ.kr./m2
76.100.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache