*** EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA ***
Helgafellfasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna bjarta og vel skipulagða 2ja herbergja endaíbúð á jarðhæð í nýlegu 2 hæða fjölbýli með sér inngangi og sér verönd. Heildarfermetrafjöldi er 53,3 fm. og verönd til vesturs er 6.7 fm. Góð lofthæð er í íbúðinni.
TILVALIN FYRSTA EIGN - AFHENDINGU VIÐ KAUPSAMNING.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUSTEignin skiptist í: forstofu, opið stofu og eldhúsrými, svefnherbergi, gang og baðherbergi. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla í sameign.
Nánari lýsing: Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi, skóskápur.
Eldhús: Í opnu alrými. Með hvítri eldhúsinnrétting með bakarofni og helluborði, stál milli skápa, parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Í opnu alrými. Rúmgóð með útgengi út á verönd (sérafnotaflötur) til vesturs, hellulögð að hluta, parket á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með góðum Ikea fataskápum, parket á gólfi.
Baðherbergi: Með hvítri innréttingu, speglaskáp, sturtu, upphengt salerni, handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi og inn í sturtu.
Gangur: Parket á gólfi.
Sameign: Sameiginlegt inntaksrými og vagna / hjólageymsla.
Húsið: Er byggt 2019 og er hús á tveimur hæðum með burðarvirki úr stálgrind en sökkulveggir og botnplata eru staðsteypt.
Lóð: Lóðin er 2273,2 fm. Góð aðkoma er að húsinu og framan við húsið eru alls 28 bílastæði, þar af 2 merkt hreyfihömluðum .
Eignin er vel staðsett, stutt er í skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu og verslanir - frábær fyrstu kaup. Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is.
Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.