Erling Proppé & REMAX kynna: Kolagötu 3, 101 Reykjavík. Lúxus þriggja herbergja Íbúð á fimmtu hæð með aukinni lofthæð og stórum björtum gluggum. Fasteign í hjarta Reykjavíkur með iðandi mannlíf allt um kring.Allar innréttingar og tæki eru sérvalin af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild og eru öll tæki og tæknibúnaður fyrsta flokks. Íbúðin er öll málið í ljósum lit. Hurðar í yfirstærðum eru einnig sprautulakkaðar í sama lit.
Allt ytra efnisval bygginganna er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur.
Bókið skoðun hjá Erling Proppé lgf. Sími 690-1300 eða erling@remax.isEignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: nánar tiltekið eign merkt 05-09, birt heildarstærð 117,30 fm, þar af geymsla 7,4 fm. Nánari lýsing: Fiskibeina harðparket í ljósum lit flæðir í gegnum íbúðina, þröskuldarlaust þar sem á við, nema á votrýmum þar eru vandaðar ítalskar flísar. Forstofa: Fataskápar eru í anddyri sem eru spónlagðir að innan með lýsingu og hurðum. Ytra byrði er sprautu lakkað í litaþema íbúðarinnar. Innvols er frá Innval með fylgihluti af vandaðri gerð.
Alrými: Borðstofa/stofa er eitt opið rými sem tengir saman íbúðina. Tekið var úr vegg í svefnherbergi í stofu til að setja upp sérsmíðaðar hillur og fella inn sjónvarpið. Svalir til vesturs.
Eldhús: Borðplata, hvít Meganite borðplata og innbyggður vaskur úr sama efni. Innbyggður ísskápur og innbyggð kaffivél fylgja.
Blöndunartæki eru svört á lit frá Vola, hönnuð af Arne Jacobsen.
Eldhústæki: Blástursofn, helluborð og ísskápur frá Siemens (dökkt stainless steel) með Home Connect tengingu sem hægt er að stjórna úr snjallsíma eða spjaldtölvu. Gufugleypir er innbyggður í eyju, frá Elica, tegund Easy. Innbyggð kaffivél frá Siemens fylgir.
Innréttingar: Vandaðar innréttingar frá Noblessa í Þýskalandi og GKS með ljúflokunum á skápum og skúffum.
Aðalbaðherbergi: Er flísalagt með ítölskum gæðaflísum með marmaramynstri frá Iris. Innrétting er í litaþema íbúðar, háglans grá frá Noblessa með Meganite borðplötu og innbyggðum vaski úr sama efni. Speglalýsing á baðherbergjum er Mini Glo Ball frá Flos. Hreinlætistæki eru frá Vola. Salerni upphengd með innbyggðum vatnskassa.
Hjónaherbergi / svíta: Fataskápar í svefnherbergjum eru spónlagðir að innan og með hurðum og ytra byrði sem eru sprautu lakkaðar í litaþema íbúðarinnar. Innvols er frá Innval með fylgihluti af vandaðri gerð. Innaf hjónaherbergi er innangengt inn á glæsilegt baðherbergi.
Svefnherbergi II: Er rúmgott, léttur veggur skilur að alrými og lagt var upp með því að þetta herbergi hefði not sem bæði herbergi eða sjónvarpsaðstaða.
Þvottaherbergi: Flísalagt með sömu flísum og á baðherbergi. Innrétting er frá Noblessa í sama litaþema. Vinnuvaskur og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: 7,4 fm geymsla í sameign Gólf í séreignageymslu er lakkað, geymslan er með kerfislofti. Léttir veggir eru úr gipsplötuveggjum, málaðir í ljósum lit.
Sameign: Í sameign er einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Sameignir og lóð skilast fullfrágengin.
Bílastæði: Íbúum Hafnartorgs stendur til boða að leigja bílastæðakort skv. verðskrá bílageymslu Hafnatorgs, undir byggingunum er einn stærsti bílakjallari landsins með um 1160 bílastæðum.
Hafnartorg skartar 70 hágæða íbúðum. Allar innréttingar og tæki eru sérvaldar af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild og eru öll tæki og tæknibúnaður fyrsta flokks. Allt ytra efnisval bygginganna er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur. Undir húsunum er stærsti bílakjallari landsins sem nær allt til Hörpunnar. Íbúðirnar eru frábærlega staðsettar í nálægð við menningu, sögu, verslun og þjónustu. Glæsilegar fasteignir í hjarta Reykjavíkur með iðandi mannlíf allt árið um kring.Vegna mikilla umsvifa á fasteignamarkaðinum óska ég eftir öllum eignum á skrá, vönduð vinnubrögð og frítt skuldbindingarlaust verðmat. Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Erling Proppé lgf, s:690-1300, erling@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.