Vel skipulögð með sérinngang , mikið endurnýjuð íbúð í vinsælu hverfi í vesturbæ Kópavogs.
Birt stærð eignar samkv. HMS er 81,8m2. EIGNIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMNING. Eignin skipist í stofu, eldhús, eitt svefnherbergi, baðherbergi, tvær geymslur og þvottahús innan sameignar.Nánari upplýsingar gefur Halldór Freyr, Löggiltur fasteignasali, S:693-2916, halldor@fastgardur.isLýsing eignar:
Anddyri með flísalagt gólf.
Eldhús er með rúmgóðri innréttingu, vask, ofn, helluborð, viftu og gert ráð fyrir rúmgóðum borðkrók, flísar á gólfi.
Stofan er björt og stór með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum. Parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt, hvítum vaskaskáp með skúffum og sturtuklefi.
Geymsla innan sameignar í kjallara og einnig er ségeymsla undir útitröppum sem er kalt rými.
Í sameign er einnig sameiginlegt þvottahús. Eins er sameiginleg hjóla og dekkjageymsla sem stendur ein og sér út í garði.
Einnig er sérbílastæði á lóðinni sem fylgir þessari íbúð. Framkvæmdir síðustu ára.Nýlega skipt um þakjárn og pappa.
Nýlegar innihurðar
Rafmagn og tenglar endurnýjað að mestu 2018
Gólfefni endurnýjuð,
Hluti á baðherbergi endurnýjað
Búið er að samþykkja útskipti á aðaltöflu í húsinu. Reiknað með að hússjóður taki þann kostnað.
Með eigninni fylgir góður sameiginlegur garður.
Eign sem er þess virði að skoða á vinsælum og fjölskylduvænum stað í vesturbæ Kópavogs.
Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttir og aðra helstu þjónustu.