Eignatorg kynnir: Glæsilegt og vel skipulagt 4ra - 5 herbergja miðjuraðhús með innbyggðum bílskúr.
ATH: Innimyndir sem birtast í auglýsingu eru af húsinu eins og það var selt nýtt. Í dag eru komin gólfefni á allt húsið.
Skv. skráningu Fasteignaskrár er íbúðarhlutinn 85,7 m² og bílskúrin 46 m² samtals er eignin því skráð 131,7 m².
.
Nánari lýsing: Forstofa með flísum á gólfi og forstofuskáp. Gangur með parketi á gólfi. Herbergi með parketi á gólfi og skáp. Herbergi með parketi á gólfi og skáp. Baðherbergi með flísum á gólfi, flísum á veggjum, innréttingu, "walk in" sturtu, handklæðaofni og upphengdu salerni. Hjónaherbergi með parketi á gólfi og skápum. Stofa með parketi á gólfi, gluggum til norðurs og hurð út á sólpall. Eldhús með parketi á gólfi, fallegri innréttingu, tveimur ofnum og spanhelluborði. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu. Þvottahús með flísum á gólfi, innréttingu, skolvaski og lúgu upp í rúmgott, kalt geymsluris.
Innangengt er í bílskúrinn sem er rúmgóður með epoxy gólfhúð og innkeyrsluhurð með gönguhurð. Innst í bílskúrnum er rúmgóð geymsla með epoxy gólfhúð, glugga og hurð út í bakgarðinn. Hæglega mætti nota geymsluna sem fjórða svefnherbergið.
Gólfhiti í öllum gólfum.
Varmaskiptir á neysluvatni.
Búið er að leggja fyrir bílahleðslustöð.
Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða bjorgvin@eignatorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 0 - 95.000.- Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.