Fasteignaleitin
Skráð 29. apríl 2024
Deila eign
Deila

Álfalundur 53

RaðhúsVesturland/Akranes-300
226.5 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
94.900.000 kr.
Fermetraverð
418.985 kr./m2
Fasteignamat
65.700.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Ólafur Már Sævarsson
Ólafur Már Sævarsson
fasteignasali
Byggt 2024
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2530514
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
5
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
4 - Fokheld bygging
***ÁLFALUNDUR 53 - AKRANESI***

***SÍÐASTA HÚSIÐ Í Í ÞESSARI FALLEGU RAÐHÚSALENGJU***


Ólafur Sævarsson lögg. fasteignasali og Fasteignaland kynna: Fallegt og sérlega vel skipulagt raðhús í nýrri byggð í Skógarhverfinu á Akranesi, rétt við skógræktina og Golfvöllinn. Um er að ræða 6 íbúða raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Skipulag: Forstofa, 4-5 svefnherbergi (möguleiki að nýta fjölskylduherbergi á efri hæð sem fimmta svefnherbergið), 3 x baðherbergi, fataherbergi, þvottaherbergi, stofu, eldhús, borðstofu, fjölskylduherbergi (við hlið stofu sem hægt er að nýta sem fimmta svefnherbergið. Bílskúr og geymslu. Um er að ræða gott fjöldkyldu hús þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla og íþróttasvæði ÍA svo fátt eitt sé nefnt. Einnig er göngufæri á golfvöllinn hjá Golfklúbbnum Leynir. 

Eignin er skilað tilbúin til innréttinga sem og skv skilalýsingu seljanda.


Almenn lýsing: Álfalundur 53, miðjuraðhús á tveimur hæðum. 
Húsið er 230,1fm á 2.hæðum. Timbur einingarhús og samanstendur af 4 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum, forstofu, eldhúsi, borðstofu, stofu, fjölskylduherbergi / sjónvarpshol, opið rými, og þvottahúsi. Geymsla er innaf bílskúr. Gólfhiti er á báðum hæðum. 

HÖNNUN:
Húsin eru teiknuð af Sigursteini Sigurðssyni hjá Gjafa Arkitektúr og sköpun. Hann er jafnframt aðalhönnuður hússins. Hin nýja íbúðabyggð í Skógarhverfi á Akranesi byggir á metnaðarfullu skipulagi og samræmdum skilmálum innan hverfisins. Lögð er áhersla á umhverfisvæna byggð, tengingu við náttúruna, góðar samgöngur og þjónustu. Við hönnun verkefnisins var leitast við að skapa metnaðarfullar og glæsilega byggingu sem njóta sín í fallegu og náttúrulegu umhverfi. Leitast var við að hámarka notagildi íbúða og nýta útsýni, birtu og staðsetningu til fullnustu.
Hönnuður burðavirkja og lagna er Verkfræðistofa Reykjavíkur. Lýsinga og raflagnahönnuður er Sturla Snorrason.
HÚSIN:
Um er að ræða 6 íbúða raðhús á 2 hæðum með aðalinngangi á 1. hæð ásamt bílskúr. Húsin eru í hinu nýja Skógarhverfi þar sem bæði skógræktin og golfvöllurinn eru í göngufæri.
Birt stærð hverjar íbúðar er u.þ.b. 231m2 þar af 31m2 bílskúr (sjá nánar í skráningartöflu).
Burðarkerfi hússins eru úr timbureiningum og eru útveggir einangraðir með 250mm steinull. Útveggir eru pakkaðir inn með vatnsheldum gufuopnum dúk frá Siga, klæddir með vandaðri læstri álklæðningu sem tryggir lágmarks viðhald hússins. Í kringum anddyri, bílskúrshurð og undir svalaloft eru húsin klædd með furu með viðarvörn í hnotulit. Bakvið klæðningu er drendúkur. Allir gluggar eru úr ál/tré kerfi og glerjaðir með tvöföldu argonfylltu einangrunargleri. Rennihurð er í stofu með “lift to slide” kerfi. Þak hússins er með tvöfaldri vörn. Gufuopinn vatnsheldur dúkur frá Siga er settur á þakbita.
Þakið er lektað upp til að tryggja öndun og ofan á lektur eru nótaðar vatnsvarðar gólfplötur. Ofan á plötunar er tvöfalt lag af bræddum þakpappa
FRÁGANGUR ÍBÚÐA:
Íbúðirnar eru byggðar í samræmi við byggingareglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum. Íbúðum verður skilað tilbúnum til innréttinga á byggingarstigi.
Veggir og loft: Allir veggir verða komnir upp skv teikningu. Veggir og loft innan íbúða verða grunnaðir og sandsparslaðir. Loft verða fullmáluð og veggir málaðir með einni umferð í hvítum lit.
Inntök: Öll inntök, þ.e. rafmagn, heitt og kalt vatn og ljósleiðari kominn inn og öll gjöld greidd.
Gólf: Á fyrstu hæð verða öll gólf flotuð og tilbúin fyrir gólfefni. Á annari hæð skilast öll gólf með gólfplötum úr spón tilbúin fyrir gólfefni.
Stigi: Tréstigi á milli hæða og verður tilbúinn fyrir gólfefni. Svalir: Gagnvarið pallaefni úr furu.
BÍLSKÚR:.
Bílskúrshurð er svört að lit að utan, hvít að innan. Rafmagnsopnari fylgir ekki.
LÓÐ:
Lóð verður grjó:öfnuð. Frágangur á lóð eins og bílastæði, pallar, skjólveggir, gróður oþh er á ábyrgð kaupanda.

Nánari upplýsingar veitir:
Ólafur Sævarsson löggiltur fasteignasali / s.820 0303 / olafur@fasteignaland.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FASTEIGNALAND fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2024
31.2 m2
Fasteignanúmer
2530514
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
11
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
4 - Fokheld bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Leynisbraut 4
Bílskúr
Opið hús:20. maí kl 18:00-18:30
Skoða eignina Leynisbraut 4
Leynisbraut 4
300 Akranes
178.2 m2
Einbýlishús
614
555 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina Vallholt 23
Bílskúr
Skoða eignina Vallholt 23
Vallholt 23
300 Akranes
265.7 m2
Einbýlishús
725
365 þ.kr./m2
96.900.000 kr.
Skoða eignina Þjóðbraut 5
Bílastæði
Skoða eignina Þjóðbraut 5
Þjóðbraut 5
300 Akranes
254.6 m2
Fjölbýlishús
413
373 þ.kr./m2
94.999.000 kr.
Skoða eignina Álfalundur 53
Bílskúr
Skoða eignina Álfalundur 53
Álfalundur 53
300 Akranes
226.5 m2
Raðhús
634
419 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache