Fasteignaleitin
Skráð 30. apríl 2024
Deila eign
Deila

Haustakur 2

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
111.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
82.900.000 kr.
Fermetraverð
742.832 kr./m2
Fasteignamat
80.050.000 kr.
Brunabótamat
53.400.000 kr.
Mynd af Matthildur Sunna Þorláksdóttir
Matthildur Sunna Þorláksdóttir
Fasteignasali
Byggt 2006
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2284242
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
 **EIGNIN ER SELD -  ER MEÐ KAUPENDUR AÐ SAMBÆRILEGUM EIGNUM Í HVERFINU**

TORG FASTEIGNASALA KYNNIR: Falleg og rúmgóð, 3ja herbergja íbúð á neðri hæð með sér inngangi af svölum, í Akralandinu í Garðabæ. Eignin skiptist í anddyri, alrými með stofu og eldhúsi, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Útgengt er á sérafnotareit til suðurs frá stofu. Sér geymsla (10,5 fm) og sameiginleg hjólageymsla i sameign. Hleðslustöðvar eru fyrir framan hús. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, verslun og heilbrigðisþjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða matthildur@fstorg.is.


Nánari lýsing: 
Gengið er inn í anddyri með flísum á gólfi og tvöföldum fataskáp sem nær upp í loft.
Þaðan er gengið inn í hol sem tengir öll rými íbúðar, alrými með stofu, eldhúsi og borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Alrými er opið og bjart, og skiptist í inndregið eldhús, rúmgóða borðstofu og bjarta stofu þar sem gengið út á sérafnotareit til suðurs.
Eldhúsið er í enda alrýmisins og er með ljósri viðarinnréttingu og grárri borðplötu. Opnanlegt fag er í eldhúsi. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með gráum og hvítum flísum, með viðarlitaðri innréttingu, innbyggðum klósettkassa og baðkari með glervegg
Tvö svefnherbergi eru í íbúð, bæði einstaklega rúmgóð. Í hjónaherberginu er fjórfaldur fataskápur og í barnaherberginu er tvöfaldur fataskápur, skáparnir ná upp í loft. 
Innan íbúðar er sér þvottaherbergi með flísum á gólfi, vinnuborði og hillu. 
Sér geymsla (10,5 fm) fyrir íbúðina er í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 
 
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
30/07/200726.060.000 kr.27.900.000 kr.111.6 m2250.000 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Strikið 2
Bílastæði
Opið hús:18. maí kl 12:00-12:30
Skoða eignina Strikið 2
Strikið 2
210 Garðabær
93.3 m2
Fjölbýlishús
311
846 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 2D
Skoða eignina Eskiás 2D
Eskiás 2D
210 Garðabær
100.9 m2
Fjölbýlishús
32
841 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Norðurbrú 1
Bílastæði
Skoða eignina Norðurbrú 1
Norðurbrú 1
210 Garðabær
105.7 m2
Fjölbýlishús
312
784 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Arnarás 3
Opið hús:16. maí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Arnarás 3
Arnarás 3
210 Garðabær
113.1 m2
Fjölbýlishús
312
738 þ.kr./m2
83.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache