Einstaklega fallegt og vandað einbýlishús með innbyggðum bílskúr við Fossaland 5, á fallegum stað á móti Akureyri. Húsið sem er skráð skv fmr. 169,5m
2, en þar er timbur stigi upp á loft 21,5m
2 sem er opið niður í stofu stúkað af með gleri , en þar hefur verið útbúið herbergi og salernisaðstaða.( Ekki inní heildarfermetrum hússins). Glæsilegt útsýni, stórir gluggar og skjólgóður pallur. Eignin gæti hentað sem orlofshús.
Arkitekt að húsinu er Fanney Hauksdóttir.
Innréttingar og innihurðir: Hurðir og skápur í forstofu er spónlagt með Mahony, en rennihurð sem stúkar af sjónvarpsrými spónlögð með Hlyn, Eldhúsinnrétting og fataskápur í herbergi er með spónlögðum Hlyn, baðinnrétting sprautulökkuð ljósum lit.
Gólfefni: Hnotuparket og flísar.
Nánari lýsing:
Forstofa: Með flísum á gólfi og fataskáp, stór gluggi er í forstofu.
Stofa/Borðstofa: Stofan er björt , hátt er til lofts, stórir gluggar og glæsilegt útsýni, parket er á gólfi og falleg kamína. Útgengt er á verönd frá borðstofunni.
Sjónvarpsrými er rúmgott með parketi á gólfi, hægt að loka milli stofu og sjónvarpsrýmis með rennihurð sem er Spónlögð ljósum Hlyn.
Eldhús: í eldhúsinu er sérsmíðuð innrétting spónlög með Hlyn. Parket er á gólfum, gashelluborð, ofninn er í vinnuhæð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. mjög fallegt útsýni og eldhúsborð er við glugga.
Baðherbergi: Er með flísum veggjum og á gólfi. Ljós innrétting, upphengt salerni. Baðkar með sturtuaðstöðu, gluggi er þar.
Svefnherbergi: Með góðum fataskápum sem eru spónlagðir með Hlyn. Parket á gólfum.
Þvottaherbergi: Er rúmgott með flísum á gólfi, ljósri innréttingu sem er með góðu skápaplássi. Útgengt er út í garð.
Bílskúr: Innangengt er í bílskúr, sem er mjög rúmgóður hátt til lofts og skráður 38,3m
2 og er með heitu og köldu vatni, rafmagnshurðaopnara, og gólfsíðum glugga, einnig er geymsluloft sem er 13,6m
2.
Efri hæð:
Stigi er úr stofu upp á efri hæð sem er opin niður í stofu, rúmgott rými sem gefur mikla möguleika.
Herbergi með teppaflísar á gólfi.
Gestasalerni innaf herbergi er með veggfóðri og harðparket á gólfi.
Annað:
- Gólfhiti
- Loftskiptakerfi
- Hitalögn í hluta af plani og stéttum sem er ótengt.
- Sólstopp gler í hluta af gluggum.
- Mahony viður í hurðum og gluggum.
- Sedrus viður og flísar eru utan á húsinu.
- Allur frágangur mjög vandaður
- Eignin er í einkasölu á FS fasteignum
Allar frekari upplýsingar veita.
Friðrik
694-4220 fridrik@fsfasteignir.is
Svala
663-5260 svala@fsfasteignir.is